top of page

Nýársfjör!

Langar þig að byggja upp aukið þrek og aukinn styrk?  Langar þig að byggja þig upp með því að fara út í góðra vina hópi og njóta leiðsagnar reyndra sjúkraþjálfara og fararstjóra?

Útiþrek Fjallafjörs býður upp á vikulegar þrekæfingar á þriðjudögum milli 18 og 19:30 á stór-höfuðborgarsvæðinu fyrir byrjendur og lengra komna og hressandi morgungöngur milli 6:30 og 7:30 á fimmtudögum.  Erfiðleikastig æfinganna er sveigjanlegt og þátttakendur stýra ákefð og erfiðleikastigi sjálfir.

Mánaðaráskrift kostar einungis 4.900 krónur og endurnýjast sjálfkrafa þar til henni er sagt upp.  Enginn binditími.

Rík áhersla er lögð á liðsheild, samheldni, kærleika og gleði í öllum ferðum Fjallafjörs.

Útiþrek Fjallafjörs

Æfingar Útiþreks eru fjölbreyttar og mismunandi dagskrá í viku hverri.  Þær geta innihaldið styrktaræfingar, uppbyggingu þols, kraftgöngur, teygjur, yogastöður, slökun, uppgönguæfingar auk reglubundna viðmiðunaræfinga þar sem þátttakendur geta fylgst með árangri sínum.

Mánaðaráskrift kostar 4.900 krónur og endurnýjast sjálfkrafa þar til henni er sagt upp.  Enginn binditími.

 

Óskir þú eftir nánari upplýsingum um Útiþrekið hvetjum við þig til þess að senda okkur línu á fjallafjor@fjallafjor.is.

Birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Dagskrá getur tekið breytingum m.t.t. veðurs, utanaðkomandi þátta og óviðráðanlegra aðstæðna.

Með skráningu samþykkja þátttakendur skilmála Fjallafjörs sem nálgast má hér.

Fararstjórar Útiþreks

bottom of page