Grænihryggur
Fjallafjör býður upp á skemmtilega ferð um Halldórsgil að Grænahrygg þann 8. ágúst 2024.
Lagt er af stað á einkabílum frá Landvegamótum klukkan 9:00.
Hægt er að bæta við ferð að Auganu - uppsprettu Rauðufossakvíslar - þann 9. ágúst fyrir 8.000 krónur.
Áætluð vegalengd eru 16-18 km.
Áætluð hækkun eru um 800 m.
Áætlaður göngutími eru 7-9 klst.
Verð: 11.900
Með skráningu samþykkja þátttakendur skilmála Fjallafjörs/Hugsjónar ehf.