top of page
559089_8527aea06c75462b8a04aebce97069be~mv2.jpg

RAFHJÓLAFJÖR VOR 2026

Fjallafjör býður upp á spennandi rafhjólahóp vorið 2026 með kvöldferðum og dagsferðum.

Viðraðu magnaða fákinn og komdu með í skemmtilegar hjólaferðir með Fjallafjöri. Hér er áherslan á að njóta samverunnar í náttúrunni og þess skemmtilega ferðamáta sem rafhjólin bjóða uppá. Hægt er að skipta greiðslum án kostnaðar og athugið að mörg stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til þátttöku í starfi Fjallafjörs.  Hafið samband á netfangið fjallafjor@fjallafjor.is til að skipta greiðslum.​ Rík áhersla er lögð á liðsheild, samheldni, kærleika og gleði í öllum ferðum Fjallafjörs.

Verð: 39.900

DAGSKRÁ RAFHJÓLAFJÖRS

Dagskráin er fjölbreytt og spennandi. Vordagskráin samanstendur af 7 ferðum ferðum auk undirbúningsfundar Engar æfingar eru í dagskránni heldur eingöngu ferðir þar sem við njótum samveru, náttúru og góðra nestistíma. Þátttakendur þurfa að geta flutt hjól sín á milli staða en ávallt er ferðast á einkabílum.

 

Fjallafjör hvetur þátttakendur eindregið til þess að nota hjálma.

Ferðirnar eru mjög fjölbreyttar sem og erfiðleikastig þeirra en heilt yfir má segja að hópurinn henti flestum sem á annað borð geta notið ferðalaga á rafhjólum og geta hjólað eftir slóðum.  Ferðirnar eru allajafna á bilinu 20-60 kílómetrar.  Óskir þú eftir nánari upplýsingum um Rafhjólafjör hvetjum við þig til þess að senda okkur línu á fjallafjor@fjallafjor.is.​

Birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Dagskrá getur tekið breytingum m.t.t. veðurs, utanaðkomandi þátta og óviðráðanlegra aðstæðna. Eins getur dagskráin breyst með hliðsjón af verndun náttúrunnar, s.s. ef mikil aurbleyta er og hætta er á að hjólandi umferð valdi varanlegum skaða.

​​

Með skráningu samþykkja þátttakendur skilmála Fjallafjörs sem nálgast má hér.

IMG_3876.HEIC

HVERNIG HJÓL?

Flest rafhjól ráða vel við ferðirnar okkar en gott er að hafa eftirfarandi viðmið til hliðsjónar:

-Tog mótors yfir 60 nm

-Breidd dekkja yfir 50mm (2")

-Raundrægni rafhlöðu 50km

-Framdempari

Sendu okkur línu ef þú ert í vafa með þitt hjól og við aðstoðum eftir bestu getu!

Undirbúningsfundur

Allir hópar Fjallafjörs hefjast með undirbúningsfundi þar sem farið er yfir öryggismál, fatnað, búnað, næringu, fyrirkomulag dagskrárinnar og ferðanna sem og ýmis praktísk atriði.

Facebookhópur

Fjallafjör notar Facebookhópa til þess að bjóða í ferðir, á viðburði, miðla upplýsingum og þess háttar. Við hvetjum þátttakendur til þess að deila myndum og minningum úr ferðum í hópunum.

Afslættir

Þátttakendur í Fjallafjöri fá afslætti hjá ýmsum verslunum. Skoðaðu afsláttarkjörin, sæktu þátttakendaskírteini í símann þinn og njóttu betri kjara.

FARARSTJÓRAR RAFHJÓLAFJÖRS

Guðmundur S.
kristey_edited.jpg

Leyfi frá Ferðamálastofu

Hóparnir okkar

Tenglar

Hafa samband

Ferðamálastofa hefur úthlutað Hugsjón ehf. leyfisnúmer 2021-27 sem ferðasali dagsferða og ferðaskrifstofuleyfi númer 2021-036.

Leyfi Ferðamálastofu
Leyfi Ferðamálastofu
covid approved
1442912-removebg-preview.png

Fjallafjör

1442912-removebg-preview.png

Hópar

1442912-removebg-preview.png

Ferðir og námskeið

455705-removebg-preview.png

497-0090

circle_location-512-removebg-preview.png

Laxabakki 9, Selfossi

1442912-removebg-preview.png

Fjörskyldan

1442912-removebg-preview.png

Gagnlegar upplýsingar

 © 2021 FJALLAFJÖR​, Sími: 497 0090 Hugsjón ehf. kt. 430621-2620 Laxabakki 9, 800 Selfoss. Endurritun óheimil nema með leyfi.

bottom of page