

Öræfin norðan Vatnajökuls
Rafhjólaferð
Fjallafjör býður upp á rafmagnaða fimm daga ferð um Öræfin norðan vatnajökuls dagana 12. - 16. ágúst 2026. Fararstjórn, tjaldgisting, matur, trúss, rafhleðsla fyrir hjól og önnur raftæki og skutl að upphafsstað er innifalið.
Ferðast er um Mývatnsöræfi, Ódáðahraun, Kverkfjöll, Herðubreiðarlindir, Hvannalindir og svo margt, margt fleira sem fyrir augu ber!
Staðfestingargjald eru 47.475 krónur á mann.
Lágmarksfjöldi: 8
Hámarksfjöldi: 15
Verð: 189.900 krónur.
Innifalið:
-Fararstjórn
-Tjaldsvæði
-Rafhleðsla fyrir hjól og raftæki
-Tjaldleiga á meðan birgðir endast
-Fullt fæði utan síðustu kvöldmáltíðarinnar
-Trúss
-Þjónustubíll með rafhleðslu, verkfærum o.fl.
Greiðslumöguleikar: Staðgreiðsla, greiðsludreifing án kostnaðar, ferðaávísun í gegnum Frímann (orlof.is).









Dagskrá ferðarinnar
Undirbúningsfundur - 4. ágúst
dagur 1 - 12. ágúst
Hópurinn hittist við Hof á Akureyri klukkan 12:00 þar sem tekið er á móti trússi. Brottför 12:30. Ekið er sem leið liggur að afleggjaranum inn á Öskjuleið F88 þar sem ferðin hefst. Hjólað er að Hrossaborg og gengið upp á hana áður en haldið er áfram í Herðubreiðarlindir þar sem fyrsta næturáning er. Við sláum upp tjaldbúð (hægt er að bóka skála hjá FFA) fáum okkur hressingu og síðan er gengið er um Herðubreiðarlindir áður en við fáum okkur kvöldverð.
Hjólað frá Hrossaborg í Herðubreiðarlindir.
Áætluð vegalengd: 61 km.
Áætluð hækkun: 230m
Áætluð lækkun: 110m
Matseðill:
Kvöldverður: Mexico kjúklingasúpa með nachos, snittubrauði og smjöri.
Kvöldsnarl: af ýmsum toga
Dagur 2 - 13. ágúst
Lagt af stað 10:00 eftir morgunverð og frágang. Hjólað er frá Herðubreiðarlindum í Dreka þar sem gist verður. Á leiðinni skoðum við hinn ægifagra Gljúfrasmið áður en við hjólum um Víkursand. Eftir áningu er valkvætt að hjóla að Vikraborgum og ganga að Öskjuvatni og Víti eftir smá innskot af rafmagni á hjólin.
Áætluð vegalengd: 37,8/53,3 km.
Áætluð hækkun: 490/790m.
Áætluð lækkun: 200/500m.
Matseðill
Morgunverður: morgunverðarhlaðborð - brauð, álegg, salöt, egg, skyr og nóg af kaffi.
Hádegisverður: innifalið af morgunverðarhlaðborði
Kvöldverður: Kjötsúpa og snittubrauð með smjöri
Dagur 3 - 14. ágúst
Lagt af stað 10:00 eftir morgunverð og frágang. Dreka í Kverkfjöll og gist við Sigurðarskála. Hægt er að fara í stutta útsýnisgöngu á Virkisfell.
Áætluð vegalengd: 66km.
Áætluð hækkun: 520m.
Áætluð lækkun: 470m.
Matseðill
Morgunverður: morgunverðarhlaðborð - brauð, álegg, salöt, egg, skyr og nóg af kaffi.
Hádegisverður: innifalið af morgunverðarhlaðborði
Kvöldverður: Innifalið
Kvöldsnarl: af ýmsum toga
Dagur 4 - 15. ágúst gran fondo
Lagt af stað klukkan 9:30 eftir morgunverð og frágang. Hjólað er úr Kverkfjöllum í Möðrudal með stoppi í Hvannalindum þar sem hjólin verða hlaðin og við dýfum okkur í ylvolgan læk.
Áætluð vegalengd: 104 km.
Áætluð hækkun: 390m.
Áætluð lækkun: 780m.
Matseðill
Morgunverður: morgunverðarhlaðborð - brauð, álegg, salöt, egg, skyr og nóg af kaffi.
Hádegisverður: innifalið af morgunverðarhlaðborði
Kvöldverður: Hópurinn snæðir saman á
Kvöldsnarl: af ýmsum toga
Dagur 5 - 16. ágúst
Stutt lokasamvera áður en þátttakendum er ekið að upphafsstað ferðar, um hálftíma akstursleið. Eftir stærð hópsins getur þurft að fara fleiri en eina ferð og þá er um að gera að fá sér kaffi og hjónabandssælu í Fjalladýrð á meðan.
Matseðill
Morgunverður: morgunverðarhlaðborð - brauð, álegg, salöt, egg, skyr og nóg af kaffi.Morgunverður: Kaffi, brauð, salat, ávextir, ber og fleira á hlaðborði.
Frávik
Í langri helgarferð sem þessari er margt sem getur haft áhrif á dagskrá og tímasetningar. Því ber að líta á tímasetningar sem viðmið.
Gisting
Gist er í tjöldum en þátttakendur sem ekki eiga tjald geta fengið tjaldleigu innifalda á meðan birgðir endast. Þátttakendum er frjálst að leigja gistiaðstöðu í skálum á leiðinni kjósi þeir svo.
Þátttakendur búa sjálfir um hádegisverð og því er nokkur sveigjanleiki t.d. varðandi álegg.
Undirbúningsfundur
Allir hópar Fjallafjörs hefjast með undirbúningsfundi þar sem farið er yfir öryggismál, fatnað, búnað, næringu, fyrirkomulag dagskrárinnar og ferðanna sem og ýmis praktísk atriði.
Facebookhópur
Fjallafjör notar Facebookhópa til þess að bjóða í ferðir, á viðburði, miðla upplýsingum og þess háttar. Við hvetjum þátttakendur til þess að deila myndum og minningum úr ferðum í hópunum.
afslættir
Þátttakendur í Fjallafjöri fá afslætti hjá ýmsum verslunum. Skoðaðu afsláttarkjörin, sæktu þátttakendaskírteini í símann þinn og njóttu betri kjara.
Við fyrir þig
Fararstjórar Fjallafjörs eru boðnir og búnir til að aðstoða þátttakendur í hvívetna, hvort sem viðkemur notkun á búnaði, vali á dagskrá eða hverskonar ráðgjöf er varðar útivist og fjallgöngur. Hafði samband milli 9 og 17 virka daga eða ræddu við fararstjórann þinn í næstu ferð!

Hvaða hóp á ég að velja?

Hvernig get ég borgað fyrir ferðirnar?

Hvernig eru ferðirnar gráðaðar?


