Ævintýrafjör!
Sannkallað leikjanámskeið fyrir fullorðna!
Í Ævintýrafjöri Fjallafjörs færð þú að prófa allskonar gerðir útivistar í tveggja mánaða dagskrá. Dagskráin hefst í 13. maí með undirbúningsfundi, fyrsta ferð er 20. maí og ævintýrin hrannast upp í viku hverri! Á meðal ævintýra eru fjallgöngur, klettaklifur, kayakferð, hjólaferðir, sig og risaróla, hellaferð og jöklaferð.
Verð: 39.900

ÆVINTÝRAFJÖR!
Hvaða búnað þarf ég?
Þegar ævintýrin eru fjölbreytt þarf fjölbreyttan búnað og eðlilegt að velta fyrir sér hvað er nauðsynlegt. Í ferðirnar þarf allan helsta útivistarbúnað - fatnað, skó, bakpoka o.þ.h. en hér fyrir neðan listum við upp helsta búnaði sem þarf fyrir ævintýrin umfram þennan hefðbundna búnað.
Kayak: Allur nauðsynlegur sérbúnaður er innifalinn.
Klettaklifur: Allur nauðsynlegur sérbúnaður er innifalinn.
Jöklaferð: Þátttakendur þurfa viðurkenndan jöklabúnað, þ.e. jöklabrodda, ísexi, klifurbelti, læsta karabínu og hjálm. Hægt er að leigja jöklapakka með 15% afslætti hjá Fjallafjöri fyrir þessa ferð.
Sig: Allur nauðsynlegur búnaður er innifalinn.
Hellaferðir: Hjálmur og höfuðljós.
Hjólaferðir: Hjól, hjálmur.
Hafðu samband við Fjallafjör ef þú ert í vandræðum með einhvern af þessum búnaði og við reynum að aðstoða eftir bestu getu!
Algengar spurningar
Hvernig hjól get ég notað?
Öll hjól nema götuhjól (racer) eru brúkleg í ferðirnar svo lengi sem öryggisatriði, bremsur og gírbúnaður er í lagi.
Eitthvað í dagskránni er aðeins of, verð ég að mæta?
Að sjálfsögðu ekki! Dagskráin miðar þó við að byrjendur geti tekið þátt og fararstjórar styðja þátttakendur eftir bestu getu. Ef eitthvað er of langt út fyrir þægindarammann sleppir þú bara þeirri ferð og tekur þátt í hinum ævintýrunum!
Klukkan hvað er farið?
Allajafna er brottför í kvöldferðir klukkan 18:00. Þó geta verið frávik á því og er það auglýst sérstaklega þegar boðið er í ferðina. Í jöklaferðina er hist á bílaplani við Sólheimajökul klukkan 11:00 og geta þátttakendur sameinast í bíla ef þau vilja.
Undirbúningsfundur
Allir hópar Fjallafjörs hefjast með undirbúningsfundi þar sem farið er yfir öryggismál, fatnað, búnað, næringu, fyrirkomulag dagskrárinnar og ferðanna sem og ýmis praktísk atriði.
Facebookhópur
Fjallafjör notar Facebookhópa til þess að bjóða í ferðir, á viðburði, miðla upplýsingum og þess háttar. Við hvetjum þátttakendur til þess að deila myndum og minningum úr ferðum í hópunum.
afslættir
Þátttakendur í Fjallafjöri fá afslætti hjá ýmsum verslunum. Skoðaðu afsláttarkjörin, sæktu þátttakendaskírteini í símann þinn og njóttu betri kjara.
Við fyrir þig
Fararstjórar Fjallafjörs eru boðnir og búnir til að aðstoða þátttakendur í hvívetna, hvort sem viðkemur notkun á búnaði, vali á dagskrá eða hverskonar ráðgjöf er varðar útivist og fjallgöngur. Hafði samband milli 9 og 17 virka daga eða ræddu við fararstjórann þinn í næstu ferð!

Hvaða hóp á ég að velja?

Hvernig get ég borgað fyrir ferðirnar?

Hvernig eru ferðirnar gráðaðar?