Snæfellsjökull 2. í Hvítasunnu
Snæfellsjökul 2. í Hvítasunnu þann 9. júní 2025.
Athugið að í þessa ferð er nauðsynlegt að vera með viðurkenndan jöklabúnað, þ.e. jöklabrodda, ísexi, klifurbelti og læsta karabínu. Þennan búnað er hægt að leigja í öllum helstu útivistarverslunum en einnig hjá Fjallafjöri. 15% afsláttur er veittur af leigðum búnaði ef hann er leigður fyrir ferðir Fjallafjörs og ekkert leigugjald er rukkað ef ferð fellur niður.
Dagskrá ferðarinnar:
Brottför frá Stapafelli er klukkan 10:00.
Sameinast er í hærri bíla við Stapafell og ekið upp á Jökulháls en það er vel jepplingafært. Gengið er upp að jökulrönd þar sem farið er í línu. Þá er gengið á jökulinn en um er að ræða nokkuð snarpa hækkun en ekki mjög langa vegalengd. Gönguhraði tekur mið af færð og getu hópsins og áhersla lögð á að njóta ferðarinnar og upplifa kyngimagnaða nærveru jökulsins.
Áætluð hækkun er á bilinu 900-1.000 metrar
Áætluð vegalengd er á bilinu 8-10 km. (fer eftir færð)
Hægt er að greiða fyrir ferðina með ferðaávísun stéttarfélaga.
Hægt er að leigja jöklabúnað fyrir 5.100 krónur (jöklabroddar, ísexi, belti og karabína) og bæta því við pöntunina á meðan birgðir endast.
Með skráningu samþykkja þátttakendur skilmála Fjallafjörs / Hugsjónar ehf.