
Hekla 2024-2025
Hekluhópur Fjallafjörs hentar þeim sem þegar hafa tekið sín fyrstu skref í fjallgöngum og útivist og eru tilbúin að takast á við lengri og meira krefjandi ferðir. Dagskráin hentar því lengra komnum í fjölbreyttri og spennandi dagskrá sem spannar heilt starfsár - frá ágúst 2024 fram í júní 2025 en athugið að ekki er um afrekshópa að ræða og að hóparnir ganga ekki í línum. Að þessu sinni eru TVÆR HELGARFERÐIR innifaldar í dagskránni - ein að hausti og dagskránni lýkur með helgarferð. Báðar eru innifaldar í þátttökugjaldi. Ýmist er ferðast á einkabílum eða rútum og er rútukostnaður innifalinn í þátttökugjaldi. Rík áhersla er lögð á liðsheild, samheldni, kærleika og gleði í öllum ferðum Fjallafjörs.
VERÐ: 84.900
Innifalið:
-Fararstjórn
-Rútur þegar við á

Dagskrá Hekluhópsins 2024-2025
Dagskráin samanstendur af 20 ferðum, kvöldferðum, dagsferðum og tveimur helgarferðum. Dagskráin er fjölbreytt og spennandi og erfiðleikastig ferðanna vítt. Finna má styttri og lengri dagsferðir sem og einfaldari kvöldferðir í bland við kvöldferðir með þónokkurri hækkun. Því má segja að hópurinn henti þeim sem geta hreyft sig með góðu móti og tekist á við fjölbreyttar gönguleiðir, talsverðar vegalengdir og hækkanir á fjöllum. Óskir þú eftir nánari upplýsingum um Hekluhópinn hvetjum við þig til þess að senda okkur línu á fjallafjor@fjallafjor.is. Hægt er að bera saman mismunandi hópa hér. Birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Dagskrá getur tekið breytingum m.t.t. veðurs, utanaðkomandi þátta og óviðráðanlegra aðstæðna. Með skráningu samþykkja þátttakendur skilmála Fjallafjörs sem nálgast má hér.
Hvað er innifalið?
-Fararstjórn
-Rútur þegar við á
-Helgarferð í Skagafjörð, sjá nánari lýsingu neðar
-Lokaferð í Kerlingarfjöll með tjaldgistingu og grillveislu á laugardegi, sjá nánari lýsingu neðar

Helgarferð í Skagafjörð
Helgina 13.-15. september förum við í helgarferð í Skagafjörð. Um bækistöðvaferð er að ræða og verður bækistöð okkar í félagsheimilinu á Ríp. Innifalið í ferðinni er morgunverður og gisting en þátttakendur geta valið að gista fyrir utan í tjaldi/ferðavagni eða í félagsheimilinu.
Dagskrá helgarinnar er þannig:
Föstudagur:
Þátttakendur koma sér fyrir, grillin heit, kvöldsamvera klukkan 21:00 í félagsheimili.
Laugardagur:
Morgunverður milli 8 og 9. Brottför í göngu dagsins klukkan 9:30. Gengið verður á Mælifellshnjúk og upp Bólugil. Grillin heit klukkan 19:00 og kvöldvaka hefst klukkan 21:30
Sunnudagur:
Morgunverður milli 8:30 og 9:30. Frágangur á svæðinu, brottför klukkan 10:30. Gengið verður á Glóðafeyki.
Lokasamvera að göngu lokinni.

Lokaferð í Kerlingarfjöll
Helgina 27.-29. júní 2025 förum við í helgarferð í Kerlingarfjöll þar sem gengið verður m.a. á tvo af 100 hæstu tindum landsins. Innifalið í ferðinni er morgunverður, grillveisla og tjaldsvæði en þátttakendur geta bókað skálagistingu aukalega þegar nær dregur.
Dagskrá helgarinnar er þannig:
Föstudagur:
Brottför frá Hádegismóum klukkan 11:00. Ekið í Kerlingarfjöll með nokkrum stoppum, s.s. á Bláfellshálsi og við Gýgjarfoss. Þegar komið er í Kerlingarfjöll koma þátttakendur sér fyrir og gera sig klára fyrir stutta göngu á Ásgarðsfjall og um svæðið. Grillin heit að göngu lokinni og kvöldsamvera hefst klukkan 21:00.
Laugardagur:
Morgunverður milli 8 og 9. Brottför í göngu dagsins klukkan 9:30. Gengið verður á tvo af 100 hæstu tindum landsins, Fannborg og Snækoll en sá síðarnefndi er hæsti tindur Kerlingarfjalla.
Grillin heit klukkan 19:00 og kvöldvaka hefst klukkan 21:30
Sunnudagur:
Morgunverður milli 8:30 og 9:30. Brottför í göngu dagsins er klukkan 10:00 en gengið verður að Hveradölum og um Ásgarðsgljúfur. Frágangur og lokasamvera að göngu lokinni.
Undirbúningsfundur
Allir hópar Fjallafjörs hefjast með undirbúningsfundi þar sem farið er yfir öryggismál, fatnað, búnað, næringu, fyrirkomulag dagskrárinnar og ferðanna sem og ýmis praktísk atriði.
Facebookhópur
Fjallafjör notar Facebookhópa til þess að bjóða í ferðir, á viðburði, miðla upplýsingum og þess háttar. Við hvetjum þátttakendur til þess að deila myndum og minningum úr ferðum í hópunum.
afslættir
Þátttakendur í Fjallafjöri fá afslætti hjá ýmsum verslunum. Skoðaðu afsláttarkjörin, sæktu þátttakendaskírteini í símann þinn og njóttu betri kjara.
Hvaða hóp á ég að velja?
Hvernig get ég borgað fyrir ferðirnar?
Hvernig eru ferðirnar gráðaðar?