top of page

Dagskrárkynning - Lágafell, Meðalfell, Fjölskyldufjör og Byrjendanámskeið Fjallafjörs

mið., 24. ágú.

|

Teams

Fjallafjör býður upp á dagskrárkynningu á eftirfarandi gönguhópum: Lágafell Meðalfell Fjölskyldufjör Byrjendanámskeið Fjallafjörs

Skráningu er lokið.
Sjá fleiri viðburði
Dagskrárkynning - Lágafell, Meðalfell, Fjölskyldufjör og Byrjendanámskeið Fjallafjörs
Dagskrárkynning - Lágafell, Meðalfell, Fjölskyldufjör og Byrjendanámskeið Fjallafjörs

Staður & stund

24. ágú. 2022, 20:00 – 25. ágú. 2022, 20:00

Teams

Gestir

Um viðburðinn

Fjallafjör býður upp á hnitmiðaða dagskrárkynningu á Lágafelli, Meðalfelli, Keili og Kötlu en þessir hópar eru meðal þeirra sem hefjast haustið 2022.

Lágafell

Lágafellshópur Fjallafjörs hentar í senn byrjendum og þeim sem vilja fara í styttri ferðir og gefa sér rúman tíma í að njóta þeirra.  Lítill stígandi er í dagskránni sem miðar að því að sem flest geti tekið þátt, sama hvort þau séu að stíga upp úr sófanum eftir allnokkra kyrrsetutíð eða vilja taka þátt í rólegum ferðum þar sem áherslan er á að njóta samveru og náttúru - sama hver ástæðan er. 12 ferðir og undirbúningsfundur: 29.900 krónur, nánari upplýsingar hér: https://www.fjallafjor.is/lagafell

Meðalfell

Meðalfell er tíu ferða dagskrá sem endar með spennandi dagsferð í rútu og er kostnaður vegna rútuferðarinnar innifalinn í þátttökugjaldi.  Gengið er einu sinni í viku.  Gráðun ferðanna er 1-2 og í öllum ferðum er þónokkur gönguhækkun en að hámarki 400 metrar. Verð: 34.900, nánari upplýsingar hér: https://www.fjallafjor.is/medalfell

Fjölskyldufjör

Fjölskyldufjör Fjallafjörs er vettvangur fyrir fjölskyldur af öllum gerðum, stærðum og samsetningum til að fara út að leika saman í náttúrunni.  Fjallafjör býður fjölskyldum upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir hagkvæmt verð.  Þátttökugjald er einungis 9.900 krónur fyrir hverja 12 mánuði og gildir fyrir alla fjölskylduna óháð barnafjölda - amma og afi eru velkomin líka.

Byrjendanámskeið Fjallafjörs

Byrjendanámskeið Fjallafjörs er frábær leið til að koma sér uppúr sófanum og fá haldgóða leiðsögn og fjölbreytta fræðslu um fjölmargt sem snýr að fjallgöngum og ferðamennsku, þ.m.t. undirbúningi, búnaði, öryggi, næringu, þjálfun og leiðarvali - svo eitthvað sé nefnt. Námskeiðið samanstendur af 12 kennslustundum (á þremur kvöldum), 3 dagsferðum og 6 kvöldferðum, þ.m.t. vaðferð.  Kennslubók er innifalin í þátttökugjaldi sem og 5.000 krónu inneign í gönguhópa hjá Fjallafjöri.

Share This Event

bottom of page