top of page

Við leitum að kærleiksríkum leiðtoga!


Fjallafjör leitar að frábærum einstaklingi í hlutastarf til þess að leiða ferðirnar okkar en ekki síst til að vera hluti af fjörskyldunni - fararstjórateymi Fjallafjörs.


Hæfniskröfur:

-Framúrskarandi leiðtogahæfileikar

-Framúrskarandi samskiptahæfileikar

-Frumkvæði í starfi og samskiptum

-Jákvætt viðhorf og hlýtt viðmót

-Rík öryggisvitund

-Kærleiksrík sýn á lífið, fjölbreytileika og fólk

-Metnaður til þess að skapa liðsheild, samhent og vingjarnlegt andrúmsloft

-Óbilandi ást á íslenskri náttúru

-Reynsla af fjallgöngum og útivist

-Hreint sakavottorð


Við bjóðum:

-Kærleiksríkt og metnaðarfullt starfsumhverfi

-Reglubundna þjálfun í rötun, skyndihjálp, fararstjórn og leiðtogaþjálfun

-Frábæra ferðafélaga

-Stórkostlegt samstarfsfólk (www.fjallafjor.is/teymid)


Nánari upplýsingar veita Guðmundur og Kristey í síma 497-0090.


Umsóknir óskast sendar á netfangið fjallafjor@fjallafjor.is.


Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2022. Við hvetjum fólk af öllum kynjum og á öllum aldri til þess að sækja um.

717 views0 comments

Recent Posts

See All

Bình luận


bottom of page