top of page

Hornstrandir 2027

Fimm dagar · Fjórar nætur · Tvær tjaldbúðir


Komdu með Fjallafjöri í fimm daga ferð um Hornstrandir þar sem við gefum okkur góðan tíma til að njóta náttúrunnar, sögunnar og samverunnar. Göngudagarnir eru mjög hóflegir og við göngum á rólegum hraða, með nægu svigrúmi fyrir góðar pásur, myndatökur og að virða fyrir okkur stórbrotið landslagið. Frá Hesteyri liggur leið okkar um Aðalvík, með viðkomu á fallegum ströndum og söguslóðum. Við skoðum herminjar á Darra og Straumnesfjalli, njótum útsýnisins og eigum notalegar stundir saman í tjaldbúðunum. Þetta er ferð fyrir þig sem vilt kynnast Hornströndum í rólegheitum og njóta hvers dags til fulls.

Fyrstu tvær næturnar dveljum við í tjaldbúðum við Gamla skóla í Vestur-Aðalvík og síðari tvær á Látrum. Þaðan förum við í dagsgöngur áður en haldið er heim sjóleiðina á fimmta degi.

 

Dagsetningar, verð og upplýsingar um skráningu verða kynnt síðar.

​

Dagskrá ferðarinnar

Dagur 1 · Hesteyri og Vestur-Aðalvík

Vegalengd: 13–14 km · Hækkun: 300–350 m

Ævintýrið hefst með siglingu á Hesteyri. Við gefum okkur tíma til að skoða minjar hvalstöðvar Norðmanna á Stekkeyri, sem reist var árið 1894 og síðar breytt í síldarverksmiðju. Rústirnar og hinn áberandi strompur minna á atvinnulífið sem eitt sinn blómstraði við fjörðinn.

Þaðan höldum við yfir til Sæbóls í vestanverðri Aðalvík. Á leiðinni göngum við framhjá Staðarkirkju, fallegri timburkirkju frá árinu 1904. Við kirkjuna voru tekin atriði í kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Börn náttúrunnar, sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda kvikmyndin árið 1992. Við höldum síðan að Gamla skóla, þar sem við sláum upp tjaldbúðum til tveggja nátta og njótum fyrsta kvöldsins saman.

 

Tjaldbúðir: Við Gamla skóla · fyrri nótt af tveimur

 

Dagur 2 · Búðarnes, Darri og Skáladalsbjarg

Vegalengd: 12–13 km · Hækkun: 550–600 m

Við göngum á Búðarnes og síðan á Darra. Þar skoðum við herminjarnar og horfum yfir Rytaskörð. Leiðin liggur áfram um Skáladalsbjarg áður en við höldum til baka í tjaldbúðirnar.

 

Tjaldbúðir: Við Gamla skóla · síðari nóttin

​

Dagur 3 · Hyrningsgata, Miðvík og Látrar

Vegalengd: 10–11 km · Hækkun: Óveruleg

Eftir morgunmat göngum við frá tjaldbúðunum og höldum um Vestur-Aðalvík, fyrir Hvarfnúp um Hyrningsgötu. Við göngum í Miðvík, um Miðvíkursand og fyrir Mannfjall að Látrum, þar sem við sláum upp tjaldbúðum til tveggja nátta. Þegar búið er að koma sér fyrir förum við í göngu um Látra.

 

Sjávarföll ráða brottfarartíma. Gæta þarf sjávarfalla á leiðinni um Hyrningsgötu og er brottför dagsins skipulögð með hliðsjón af þeim.

 

Tjaldbúðir: Látrar · fyrri nótt af tveimur

 

Dagur 4 · Straumnesfjall og Rekavík

Vegalengd: 17–18 km · Hækkun: 550 m

Við göngum á Straumnesfjall og skoðum herminjarnar þar. Síðan liggur leiðin eftir fjallinu og niður í Rekavík bak Látur. Við göngum með Rekavíkurvatni og aftur að Látrum, þar sem síðasta kvöldið í tjaldbúðunum bíður okkar.

 

Tjaldbúðir: Látrar · síðari nóttin

​

Dagur 5 · Kveðjustund og sigling frá Látrum

Við göngum frá tjaldbúðunum og eigum lokasamveru áður en við kveðjum Hornstrandir. Siglt er frá Látrum um hádegisbil.

 

Viltu vita meira?

Hafðu samband við Fjallafjör í fjallafjor@fjallafjor.is eða í síma 497 0090 vegna fyrirspurna um ferðina.

Leyfi frá Ferðamálastofu

Hugsjón ehf.
Ferðasali dagsferða: 2021-27
Ferðaskrifstofuleyfi: 2021-036

Leyfi Ferðamálastofu
Leyfi Ferðamálastofu

Hóparnir okkar

Tenglar

Hafa samband

Ör til hægri

Fjallafjör

Ör til hægri

Hópar

Sími

497-0090

Ör til hægri

Ferðir og námskeið

Ör til hægri

Fjörskyldan

Staðsetning

Laxabakki 9, Selfossi

Ör til hægri

Gagnlegar upplýsingar

 © 2021 FJALLAFJÖR​, Sími: 497 0090 Hugsjón ehf. kt. 430621-2620 Laxabakki 9, 800 Selfoss. Endurritun óheimil nema með leyfi.

bottom of page