top of page
Hornstrandir 2027 – 22.–26. júlí

Hornstrandir 2027 – 22.–26. júlí

Snemmskráning – 89.900 kr.

Sparaðu 20.000 kr. með því að bóka fyrir 1.12.2026.

Tryggðu þér fimm daga Hornstrandaferð á snemmskráningarverði. Almennt verð er 109.900 kr. Snemmskráning greiðist að fullu í einu lagi við bókun.

Veldu „Snemmskráning – 89.900 kr.“ í greiðsluvalinu og bókaðu ferðina.

 

22.–26. júlí 2027 · Fimm dagar · Fjórar nætur í tjöldum

Komdu með Fjallafjöri í fimm daga gönguferð um Hornstrandir. Við göngum á hóflegum hraða og gefum okkur góðan tíma fyrir pásur, myndatökur, söguslóðir og samveru. Leiðin liggur frá Hesteyri um vestanverða Aðalvík og áfram að Látrum, með dagsgöngum á Darra og Straumnesfjall.

Fyrstu tvær næturnar tjöldum við við Gamla skóla í Vestur-Aðalvík og síðari tvær á Látrum. Áætlaðar dagleiðir eru 10–18 km; lengsti dagurinn er gangan á Straumnesfjall.

Verð og greiðsluleiðir

  • Snemmskráning fyrir 1.12.2026: 89.900 kr. á mann. Greiðist í einu lagi við bókun. Sparnaður er 20.000 kr. Snemmskráningarverðið gildir eingöngu þegar ferðin er greidd að fullu - greiðsla staðfestingargjalds tryggir ekki snemmskráningarverð.
  • Fullt verð: 109.900 kr. á mann. Greitt að fullu við bókun, hægt að skipta greiðslum.
  • Staðfestingargjald: 27.475 kr. á mann. Greitt við bókun og dregst frá fullu verði. Eftirstöðvar eru 82.425 kr. Staðfestingargjaldið er hluti af heildarverðinu, ekki verð allrar ferðarinnar, og fæst ekki endurgreitt.

 

Veldu greiðsluleið í fellivalinu áður en þú setur ferðina í körfu. Upphæðin sem birtist fyrir valda leið er sú sem greiðist núna. Magn 1 gildir fyrir einn þátttakanda.

Sjá nánari kynningu á Hornstrandaferðinni.

  • Dagskrá og gönguvegalengdir

    Dagur 1 · 22. júlí — Hesteyri og Vestur-Aðalvík
    13–14 km · Hækkun 300–350 m

    Siglt er á Hesteyri og minjar hvalstöðvar Norðmanna skoðaðar. Þaðan göngum við til Sæbóls í vestanverðri Aðalvík og framhjá Staðarkirkju, þar sem atriði úr kvikmyndinni Börn náttúrunnar voru tekin. Myndin var tilnefnd til Óskarsverðlauna. Við sláum upp tjaldbúðum við Gamla skóla til tveggja nátta.

    Dagur 2 · 23. júlí — Búðarnes, Darri og Skáladalsbjarg
    12–13 km · Hækkun 550–600 m

    Gengið er á Búðarnes og síðan á Darra, þar sem herminjar verða skoðaðar og horft yfir Rytaskörð. Leiðin liggur um Skáladalsbjarg og til baka að tjaldbúðunum við Gamla skóla.

    Dagur 3 · 24. júlí — Hyrningsgata, Miðvík og Látrar
    10–11 km · Óveruleg hækkun

    Eftir morgunmat göngum við frá tjaldbúðum um Vestur-Aðalvík og fyrir Hvarfnúp um Hyrningsgötu. Brottfarartími tekur mið af sjávarföllum. Gengið er í Miðvík, um Miðvíkursand og fyrir Mannfjall að Látrum, þar sem tjöldum er komið fyrir til tveggja nátta. Að því loknu göngum við um Látra.

    Dagur 4 · 25. júlí — Straumnesfjall og Rekavík
    17–18 km · Hækkun 550 m

    Gengið er á Straumnesfjall og herminjar skoðaðar. Við göngum eftir fjallinu og niður í Rekavík bak Látur, með Rekavíkurvatni og aftur að Látrum.

    Dagur 5 · 26. júlí — Lokasamvera og heimferð

    Við göngum frá tjaldbúðum og eigum lokasamveru. Siglt er frá Látrum um hádegisbil.

    Dagskrá og tímasetningar geta breyst vegna veðurs, sjávarfalla og siglingaaðstæðna.

  • Greiðslur og bókun

    Greiðsluleiðin sem þú velur ákvarðar upphæðina í körfunni. Við greiðslu staðfestingargjalds, 27.475 kr., standa eftir 82.425 kr. af fullu verði. Upplýsingar um greiðslu eftirstöðva fást hjá Fjallafjöri.

    Snemmskráningarverð, 89.900 kr., er aðeins í boði fyrir 1.12.2026 og greiðist að fullu í einu lagi.

    Sjá skilmála Fjallafjörs.

  • Fyrirspurnir

    Fyrir upplýsingar um búnað, farangur og ferðatilhögun: fjallafjor@fjallafjor.is eða 497 0090.

109.900 kr.Price
Quantity

Leyfi frá Ferðamálastofu

Hugsjón ehf.
Ferðasali dagsferða: 2021-27
Ferðaskrifstofuleyfi: 2021-036

Leyfi Ferðamálastofu
Leyfi Ferðamálastofu

Hóparnir okkar

Tenglar

Hafa samband

Ör til hægri

Fjallafjör

Ör til hægri

Hópar

Sími

497-0090

Ör til hægri

Ferðir og námskeið

Ör til hægri

Fjörskyldan

Staðsetning

Laxabakki 9, Selfossi

Ör til hægri

Gagnlegar upplýsingar

 © 2021 FJALLAFJÖR​, Sími: 497 0090 Hugsjón ehf. kt. 430621-2620 Laxabakki 9, 800 Selfoss. Endurritun óheimil nema með leyfi.

bottom of page