

Vetraráskorun 2026
Fjallafjör býður upp á sannkallaða vetraráskorun dagana 31. janúar - 1. febrúar 2026!
Áskorunin felst í að klífa fjall, ferðast og gista í tjöldum í rúmlega sólarhringsferð. Einstök upplifun sem gleymist seint!
Gengið er á Strút í Borgarfirði sem trónir í 937 metra hæð. Þegar niður er komið verður slegið upp tjaldbúð, kvöldmaturinn græjaður og allt gert klárt fyrir góðan nætursvefn. Að morgni hitum við kaffi og fáum okkur morgunverð áður en haldið er heim á leið og upplagt að stoppa við í heitum potti á heimleið!
Verð: 19.900
Athugaðu hvort stéttarfélagið þitt bjóði upp á niðurgreidda ferðaávísun hjá Fjallafjöri og skelltu þér með í skemmtilega ferð á hagkvæmu verði!
Dagskrá ferðarinnar
27. janúar - undirbúningsfundur
Í ferð sem þessari eru öryggismál númer eitt og góður undirbúningur nauðsynlegur hluti af þeim.
Á undirbúningsfundinum förum við yfir veðurhorfur, búnað, klæðnað, næringu og skipulag ferðarinnar. Búnaðarlisti er sendur þátttakendum um leið og brottför er staðfest.
31. janúar
Brottför er frá Reykjavík klukkan 9:00. Ekið er að upphafsstað ferðarinnar og gengið á tindinn. Að ferð lokinni er ekið í náttstað og tjaldbúð slegið upp, kvöldmatur hitaður og gengið til náða.
1. febrúar
Þátttakendur elda morgunverð og kaffi, ganga frá tjaldbúð og halda heim á leið með viðkomu í heitum potti.
Frávik
Í langri ferð sem þessari er margt sem getur haft áhrif á dagskrá og tímasetningar. Því ber að líta á tímasetningar sem viðmið.

