Keilishópur Fjallafjörs hefur verið einn af okkar allra vinsælustu gönguhópum og ekki af

ástæðulausu. Ferðirnar eru fjölbreyttar og spennandi og við hæfi allra sem á annað borð geta gengið á fjöll - með Úlfarsfell og Helgafell í Hafnarfirði sem gott viðmið.
Dagskráin hefur að geyma 20 ferðir - dagsferðir, kvöldferðir og helgarferð þar sem tjaldgisting (hægt að uppfæra í skála),

morgunverður og grillveisla er innifalin í þátttökugjaldinu.
Skráning hefst klukkan 12:00 þann 31. maí og þátttökugjaldið er einungis 79.900 krónur - með helgarferðinni og svo eru engir bakreikningar vegna rútuferða, þær eru innifaldar þegar það á við!
Comments